David Petraeus sagði af sér starfi yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) í dag vegna framhjáhlaups í hjónabandi.
„Í gær fór ég í Hvíta húsið og bað forsetann um leyfi, af persónulegum ástæðum, til að segja af mér starfi yfirmanns CIA,“ sagði Petreus í yfirlýsingu til starfsmanna leyniþjónustunnar.
„Eftir 37 ára hjónaband sýndi ég ákaflega mikinn dómgreindarskort með framhjáhaldi. Slíkt háttalag er ótækt, bæði af hálfu eiginmanns og forstöðumanns stofnunar sem okkar. Í dag féllst fosetinn náðarsamlegast á afsögn mína,“ sagði þar ennfremur.
Petraeus tók við starfi CIA-stjóra í september í fyrra en þar áður var hann æðsti yfirmaður fjölþjóðaheraflans í Afganistan.
Óvænt og fyrirvaralaust brotthvarf hans úr starfi kemur sér illa fyrir Obama. Búist hefur verið við að hann muni stokka upp í sveit þjóðaröryggisrágjafa sinna en þó ætlað Petreus áframhaldandi hlutverk þar. Við starfi Petreus tekur næstráðandi hans, Michael J. Morell, til bráðabirgða.