Franska lögreglan handtók í dag tvo meinta samverkamenn Mohameds Merah, sem skaut sjö manns til bana í borginni Toulouse í mars.
Maður sem lögreglan segir tilheyra samfélagi sígauna, var handtekinn suður af bænum Albi en annar maður var handtekinn í Toulouse.
Leikur grunur á að mennirnir hafi hjálpað Merah að skipuleggja og framkvæma árásirnar.