Að minnsta kosti tveir hafa orðið fyrir skoti eftir að einn eða fleiri skotmenn hófu skothríð í háskóla í Texas nú fyrir skömmu. Að svo stöddu eru misvísandi upplýsingar af atburðinum en samkvæmt AFP er einn í varðhaldi auk þess sem lögreglan leitar annars sökudólgs.
Háskólinn nefnist Lone Star College og er staðsettur nærri Houston. Háskólinn hefur birt yfirlýsingu á Facebook þar sem fólk er varað við því að koma á skólasvæðið.