Lík Hugo Chavez, forseta Venesúela, liggur í hálf opinni kistu í höfuðborg landsins, Karakas.
Fjölmargir stuðningsmenn forsetans hafa komið að herstöðinni þar sem kista Chavez er til að kveðja hann í hinsta sinn.
Þriggja daga þjóðarsorg var lýst yfir í landinu við fráfall forsetans sem hafði barist við krabbamein í marga mánuði.