Talið er mögulegt að mannræningjar sjö útlendinga í Nígeríu hafi talið breskar herþotur vera komnar til að reyna að bjarga gíslunum þegar þær voru í raun að lenda í Nígeríu til að ferja hermenn til Malí. Mannræningjarnir drápu alla gíslanna. Þeir voru m.a. frá Bretlandi, Líbanon og Grikklandi.
Stjórnvöld þessara landa sögðu frá þessu í dag og fordæmdu voðaverkin og sögðu þau grimmdarleg og framin með köldu blóði.
Gíslatökumennirnir tilheyra íslömskum öfgahópi.
Mannránið átti sér stað í febrúar á vinnslusvæði líbansks verktakafyrirtækis í norðurhluta Nígeríu.
Mannræningjarnir tilheyra hópi sem tengist hryðjuverkasamtökunum Boko Haram.
Á myndbandsupptöku sem hópurinn birti í dag kom fram að þeir hefðu ákveðið að drepa gíslana þar sem Bretar og nígerísk stjórnvöld hefðu ætlað að reyna að bjarga þeim. Það var hins vegar misskilningur.