Stjórnvöld á Kýpur staðfestu í dag að bankar landsins myndu verða opnaðir klukkan 10 í fyrramálið. Búist er við talsverðu öngþveiti, en landsmenn hafa ekki getað stundað bankaviðskipti í rúma tíu daga eða frá 16. mars.
Fyrstu sjö dagana sem bankarnir verða opnir geta viðskiptavinir að hámarki tekið út 3.000 evrur.
Um fimmtán hundruð manns mótmæltu í Nikósíu höfuðborg Kýpur í dag. Fólkið mótmælti neyðarláninu sem gengið var frá fyrr í vikunni. Bankastjóra stærsta banka landsins, Kýpurbanka, var sagt upp störfum í dag og er talið að það hafi verið að kröfu erlendra kröfuhafa.
Fjármálaráðherra Kýpur greindi frá því í dag að fólk sem ætti sparifé í Laiki bankanum ætti á hættu að glata um 80% af þeim innistæðum sem væru yfir hundrað þúsund evrur. Talið er að þeir sem eiga fé í Kýpurbanka muni tapa fjórum evrum af hverjum tíu.
Stéttarfélag bankastarfsmanna á Kýpur, ETYK, segir félagsmenn reiðubúna til starfa en biðlar til Kýpverja um að taka reiði sína ekki út á starfsfólki bankanna. „Við berum ekki ábyrgð á ástandinu, við erum líka fórnarlömb þessara aðstæðna og mörg okkar eru í afar slæmri stöðu,“ segir í yfirlýsingu frá ETYK.