Mandela fluttur á sjúkrahús

Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, var fluttur á sjúkrahús seint í gærkvöldi. Er hann með sýkingu í lungum, samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta landsins, Jacob Zuma.

Mandela er 94 ára að aldri og er þetta í annað skiptið í þessum mánuði sem hann er lagður inn á sjúkrahús vegna lungnasýkingar. Í desember þurfti hann að dvelja tæpar þrjár vikur á sjúkrahúsi en þá var hann skorinn upp við gallsteinum og fékk einnig lungnabólgu. 

Nelson Mandela
Nelson Mandela AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert