Enn eitt ríkið í Bandaríkjunum hefur samþykkt lög sem takmarka rétt kvenna til fóstureyðinga. Lögin sem þingmenn í Kansas hafa nú sent ríkisstjóranum til undirritunar takmarka einnig kynlífsfræðslu í skólum.
Í frétt Reuters-fréttastofunnar segir að þingið hafi samþykkt lögin með 90 atkvæðum gegn 30 seint í gærkvöldi.
Ríkisstjórinn Sam Brownback, repúblikani sem er yfirlýstur andstæðingur fóstureyðinga, er talinn líklegur til að skrifa hiklaust undir lögin.
Andstæðingar laganna segja að í þeim megi finna fjölmargar takmarkanir á rétti kvenna til fóstureyðinga.
Stuðningsmenn laganna segja hins vegar að lögin ítreki aðeins þau viðmið sem séu þegar viðhöfð í ríkinu og eigi að hjálpa konum að taka „upplýstar ákvarðanir“.
Undanfarin tvö ár hafa mörg ríki gert breytingar á lögum um fóstureyðingar. Þeirra á meðal eru Norður-Dakóta og Arkansas en þar voru breytingar á lögunum samþykktar fyrir fáum vikum. Þykja þær breytingar ganga þvert á niðurstöðu Hæstaréttar Bandaríkjanna frá árinu 1973 í máli sem kallaðist Wade vs. Roe.
Samkvæmt Kansas-lögunum verður bannað að setja opinbert fé í fóstureyðingar. Þá munu stofur sem framkvæma slíkar aðgerðir ekki njóta skattafríðinda eða afslátta.
Þá banna lögin skólum að leyfa samtökum á borð við Planned Parenthood að bjóða, styrkja eða veita námsefni um m.a. kynhneigð og kynsjúkdóma.
Í frumvarpinu er það ítrekað að líf kvikni við getnað en það bannar þó ekki fóstureyðingar á þessu frumstigi fósturs.