Castro leiddur fyrir dómara

Ariel Castro kom fyrir dómara í Cleveland í dag.
Ariel Castro kom fyrir dómara í Cleveland í dag. EMMANUEL DUNAND

Ariel Castro kom fyrir dómara í Cleveland í Ohio í dag, en hann hefur verið ákærður fyrir mannrán og nauðgun. Hann er sakaður um að hafa svipt fjórar manneskjur frelsi og fyrir að hafa nauðgað margsinnis þremur konum.

Konurnar þrjár, Amanda Berry, Gina DeJesus og Michelle Knight voru í haldi Castro í um 10 ár. Joslyn, 6 ára dóttir Berry, var einnig lokuð inni í húsinu. Lögreglan í Cleveland segir að konurnar hafi verið bundnar með böndum og keðjum meðan þær voru í húsinu.

Castro var niðurlútur í réttarsalnum í morgun. Lögreglan segir að hann sé samvinnuþýður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert