„Þessi gæi var bara ótrúlega fínn gaur og einn sá besti sem ég hef hitt,“ sagði Ricky Sanchez við fjölmiðla vestanhafs um Ariel Castro félaga sinn. Eins og er kunnugt þá er Castro ákærður fyrir að hafa rænt og nauðgað þremur konum sem hann hélt föngnum á heimili sínu í um áratug.
Sanchez sagðist hafa þekkt Castro í mörg ár en hann hafi þó aldrei grunað neitt. „En okkur kom mjög vel saman. Ég er mjög vandlátur þegar kemur að vinum en þetta var mjög fínn gaur. Ég er því bara í áfalli að heyra af þessu og trúi þessu bara ekki.“
Spurður að því hvað ætti að verða um Castro sagði Sanchez hann eiga skilið að sitja í fangelsi það sem eftir er. „Hann fór verr með þessar stúlkur en hunda.“