24 í það minnsta látnir

AFP

Staðfest er að 24 í það minnsta hafi látið lífið í hvirfilbylnum sem gekk yfir bæinn Moore í útjaðri Oklahoma-borgar í Bandaríkjunum í gær. Þetta kemur fram í frétt AFP og er haft  eftir talsmanni yfirvalda en áður hafði verið gefið út að 51 hefði að minnsta kosti látið lífið.

Haft er eftir Amy Elliott, dánarstjóra Oklahoma, að 24 lík hafi verið færð til embættisins og borin kennsl á flest þeirra. Greint hafi verið frá fyrri tölunni strax í kjölfar hamfaranna á mánudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert