Barbara Garcia, íbúi í bænum Moore í Oklahoma-ríki, sagðist hafa verið bænheyrð eftir að hún fann hund sinn á lífi í rústum eftir hvirfilbyl sem gekk yfir í gær. Hún sagðist aðeins hafa beðið um tvennt, að komast sjálf ómeidd út úr hörmungunum og að hundur hennar hefði það af.
Á þriðja tug manna hefur fundist látinn í rústum húsa í Moore, þar af níu börn, og er óttast að tala látinna muni hækka. Björgunarsveitarmenn leita án afláts að eftirlifendum.