Sjálfboðaliðar aka nú um bæinn Moore í Oklahoma og dreifa mat og vatni til þeirra þúsunda sem eru án rafmagns eða jafnvel húsnæðis eftir að öflugur skýstrókur gekk yfir ríkið. Staðfest er að 24 hafi látið lífið en óttast er að sú tala muni hækka.
Eyðileggingin í Moore er gríðarleg og hafa heilu hverfin verið jöfnuð við jörðu. Búist er við fleiri skýstrókum í Oklahoma í vikunni.