Ariel Castro, sem er sakaður um að hafa haldið þremur konum föngnum á heimili sínu í Cleveland í Ohio í um áratug, lýsti sig í dag saklausan af öllum ákærum.
Hann var í maí ákærður fyrir nauðgun og mannrán. Hann er jafnframt ákærður fyrir manndráp með því að hafa framkallað fósturlát hjá einni kvennanna. Ákæruliðirnir á hendur honum eru alls 329 talsins, 139 liðir vegna nauðgunar og 177 vegna mannráns.
Konurnar sem fundust á heimili hans heita Michelle Knight, 32 ára, Amanda Berry, 27 ára og Gina DeJesus, 23 ára. Þá eignaðist hann dóttur með Berry.
Castro á yfir höfði sér dauðarefsingu fyrir manndrápið.