Keyrt á stúlkuna eftir flugslysið

Brak flugvélarinnar
Brak flugvélarinnar AFP

Svo kann að vera að önnur stúlknanna tveggja sem létust í flugslysinu í San Francisco hafi látist vegna þess að ökumaður neyðarbíls hafi keyrt á hana. Þetta segja yfirmenn slökkviliðsins á San Francisco-flugvelli.

„Sá möguleiki er fyrir hendi að önnur þeirra sem létust hafi orðið fyrir einum af neyðarbílunum okkar,“ sagði Dale Carnes, aðstoðarslökkviliðsstjóri. Dánardómstjórinn í San Mateo-sýslu segir að verið sé að framkvæma krufningu á stúlkunni til að komast að því hvort hún hafi í raun lifað slysið af, en látist þegar ekið var yfir hana.

Sky News greinir frá

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert