Yoon Young-Doo, forstjóri Asiana flugfélagsins, er kominn til San Francisco þar sem hann mun skoða vélina sem brotlenti á laugardaginn auk þess að ræða við farþegana og starfsfólk Öryggis- og samgöngunefndar Bandaríkjanna.
Byrjað er að taka skýrslur af flugáhöfninni en tvær ungar stúlkur létust í slysinu og 181 var fluttur á sjúkrahús.