Mynd sem tekin var rétt eftir að flugvél Asiana brotlenti í San Francisco sýnir farþega ganga hina rólegustu frá borði með handfarangur sinn. Myndin hefur vakið töluverða athygli, ekki síst vegna þess að mjög erfiðlega gekk að koma öllum farþegum frá borði.
Hér má sjá myndasyrpu á vef Telegraph. Í henni eru myndir sem teknar voru rétt eftir brotlendinguna.
Haft hefur verið eftir einni flugfreyju vélarinnar að mjög illa hafi gengið að koma farþegunum út úr vélinni eftir að hún hafði stöðvast á flugbrautinni.. Tvær neyðarrennibrautir opnuðust óvart inni í vélinni og þurfti að stinga gat á þær með exi til þess að þær myndu ekki kæfa tvær flugfreyjur sem lentu undir þeim.
Með því að smella á renninginn hér að ofan má sjá myndir frá AFP-fréttastofunni af flugslysinu.