Heathrow lokað vegna eldsvoða

Flugvél Ethiopian Airlines
Flugvél Ethiopian Airlines Twitter

Flugbrautum á Heathrow flugvelli á Englandi hefur verið lokað eftir að eldur kviknaði um borð í flugvél Ethiopian Airlines. Samkvæmt RT og tvítum frá flugvallarstarfsmönnum eru engir um borð í vélinni. Flugvélin er af gerðinni Boeing 787 Dreamliner.

Lokað hefur verið fyrir komur og brottfarir frá flugvellinum, samkvæmt talsmanni flugvallarins.

Flugvélar hringsóla yfir vellinum og bíða eftir upplýsingum frá flugturni um hvort hægt sé að lenda á vellinum.

Vél Icelandair til Heathrow átti að fara í loftið kl. 16:10, en hefur beðið á Keflavíkurflugvelli vegna lokunarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair er vonast til þess að vélin fari í loftið um klukkan 17:30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert