Lést af sárum sínum eftir flugslys

Geoffrey Manley
Geoffrey Manley AFP

Tala látinna hækkaði um einn þegar þriðji farþeginn í flugi Asiana Airlies 214 lést af sárum sínum. Geoffrey Manley, yfirmaður taugalækningadeildar á San Francisco General Hospital, tilkynnti fjölmiðlum þetta í kvöld. Sex farþegar eru enn á spítalala, hvar af tveir eru alvarlega slasaðir.

Flugslysið varð í San Francisco síðasta laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert