George Zimmerman bjargaði fjórum úr bílveltu í síðustu viku aðeins fáum dögum eftir að hann var sýknaður af því að myrða þeldökka unglingspiltinn Trayvon Martin.
Zimmerman aðstoðaði par og tvö börn þeirra út úr bíl sem valt í Seminole-sýslu í Flórída. Þetta staðfestir talsmaður lögreglunnar.
Zimmerman hefur ekki sést opinberlega frá því hann var sýknaður. Margir hafa mótmælt niðurstöðu dómsins. Lögmenn Zimmermans segja að hann hafi fengið fjöldamargar lífslátshótanir eftir að dómurinn var kveðinn upp.