Vígamenn í Pakistan gerðu í dag árás á fangelsi í bænum Dera Ismail Khan í Pakistan. Í fangelsinu eru nokkur hundruð liðsmenn talibana sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkum.
Árásin hófst þegar nokkrar sprengjur sprungu. Byssumenn hófu síðan að skjóta af hríðskotabyssum á fangelsið og köstuðu handsprengjum að fangavörðum.
Í frétt BBC um árásina segir að árásin standi enn yfir.
Árásin hófst nokkrum klukkustundum áður en kjörstaðir í forsetakosningum í landinu opna.