Knight heimsótti húsið í Cleveland

Michelle Knight var í réttarsalnum þegar Castro var dæmdur í …
Michelle Knight var í réttarsalnum þegar Castro var dæmdur í lífstíðarfangelsi. Angelo Merendino

Michelle Knight heimsótti í gær húsið í Cleveland í Ohio þar sem Ariel Castro lokaði hana inni í 11 ár. Degi áður hafði hún ávarpað Castro í réttarsal, en Castro hefur verið dæmdur í lífstíðardóm fyrir að loka þrjár konur inni og nauðga þeim ítrekað.

Í frétt Fox-sjónvarpsstöðvarinnar segir að Knight hafi þakkað nágrönnunum Castro fyrir stuðning þeirra við hana eftir að hún losnaði úr haldi.

Húsið þar sem Castro bjó er afgirt, en líklegt er talið að það verið fjarlægt, núna þegar dómur í málinu liggur fyrir.

Konurnar þrjár, Amanda Berry, Gina DeJesus og Michelle Knight voru í haldi Castro í um 10 ár. Joslyn, 6 ára dóttir Berry, var einnig lokuð inni í húsinu.

„Ég var 11 ár í helvíti. Nú er þitt helvíti að byrja og þú verður í helvíti til eilífðar,“sagði Knight þegar hún ávarpaði Ariel Castro í réttarsalnum.

Líkan að húsinu þar sem konurnar voru í haldi var …
Líkan að húsinu þar sem konurnar voru í haldi var sýnt í réttarsalnum. Angelo Merendino
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert