Óeirðir í kjölfar dómsins

Í dag var fyrrverandi yfirmaður tyrkneska hersins og aðrir nánir samstarfsmenn hans dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að ætla sér að steypa ríkisstjórn landsins af stóli. Réttarhöldin hafa vakið gríðarlega athygli í landinu en alls voru 275 manns ákærðir. 

Lögreglan þurfti að beita táragasi á æstan múginn sem var kominn saman fyrir utan dómshúsið er dómurinn var kveðinn upp. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert