Snákur kyrkti tvö börn

AFP

Snákur sem slapp úr dýrabúð kyrkti tvo börn í New Brunswick í Kanada. Í kanadískum fjölmiðlum kemur fram að snákurinn hafi kyrkt tvo drengi, fimm og sjö ára. Drengirnir voru í heimsókn hjá vini sínum í íbúð fyrir ofan dýrabúðina.

Lögreglan segir að snákurinn hafi komist út úr búri sínu og í gegnum loftræstikerfi hússins. Í frétt AFp-fréttastofunnar segir að drengirnir hafi verið sofandi er snákurinn kom inn í herbergi þeirra. Ekki  kemur framaf hvaða tegundir snákurinn er en lögreglan hefur handsamað dýrið og hefur það í haldi.

Sagt er frá málinu á vef BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert