Ariel Castro fannst látinn

Ariel Castro
Ariel Castro AFP

Strætóbílstjórinn Ariel Castro, sem rændi, pyntaði og nauðgaði þremur konum í um áratug á heimili sínu í Ohio í Bandaríkjunum, fannst látinn í klefa sínum í nótt. Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi eftir að hafa játað sök gegn því að vera ekki dæmdur til dauða.Castro fannst hengdur í klefa sínum og var úrskurðaður látinn eftir að lífgunartilraunir báru ekki árangur.

Í tilkynningu frá fangelsisyfirvöldum kemur fram að Castro hafi verið haldið í öryggisgæslu sem þýðir að hann var einn í klefa en fangaverðir litu til hans á hálftíma fresti. Castro var úrskurðaður látinn klukkan 10:52 að bandarískum tíma, 02:52 að íslenskum tíma í nótt.  Rannsókn á láti hans er hafin, segir ennfremur í tilkynningunni.

Castro, sem var 53 ára, hélt konunum föngnum á heimili sínu þar til í maí þegar einni þeirra tókst að sleppa úr prísund sinni. Hann var dæmdur þann 1. ágúst sl. og hús hans rifið.

„Herra, það er enginn staður í þessari borg, enginn staður í þessu landi og sannarlega enginn staður í veröldinni fyrir þá sem binda aðra í ánauð, þá sem misnota aðra kynferðislega og þá sem misþyrma öðrum,“ sagði dómarinn Michael Russo við dómsuppkvaðningu.

Castro var fundinn sekur um að hafa rænt Michelle Knigth, Amöndu Berry og Ginu DeJesus þegar þær voru 20, 16 og 14 ára og haldið þeim föngnum. Við réttarhöldinn sagðist Knight ánægð með samkomulag Castro og saksóknara og sagði að dauði hefði verið kvalara hennar léttbærari.

„Ég eyddi ellefu árum í helvíti og nú er þitt helvíti rétt að byrja,“ sagði hún við Castro.

„Ég er ekki skrímsli. Ég var veikur,“ sagði Castro, sem bar í bætifláka fyrir gjörðir sínar og sagðist þjást af kynlífsfíkn. Hann sagðist ekki skilja hvað hefði valdið því að hann ákvað að halda konunum föngnum en hélt því fram að það hefði ríkt samlyndi á heimilinu.

Þá sagði hann að konurnar lygju því að hann hefði lamið þær og nauðgað. „Ég er ekki ofbeldisfull manneskja,“ sagði hann og hélt því fram að kynlíf hans og kvennanna hefði í flestum tilfellum verið með þeirra samþykki.

Geðlæknirinn Fran Ochberg sagði hins vegar að meðferð Castro á konunum jafngilti lífstíðardómi fyrir þær. Amanda Knigth varð fjórum sinnum þunguð eftir Castro, sem svelti hana og barði þar til hún missti fóstrin, en Berry eignaðist stúlku sem er 6 ára. Castro óskaði eftir því að fá að hitta dóttur sína en var neitað.

Hús helvítis jafnað við jörðu
Hús helvítis jafnað við jörðu AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert