Ítalskir kafarar sem leituðu tveggja líka sem enn er saknað eftir að skemmtiferðaskipið Costa Concordia strandaði í fyrra, hafa fundið líkamsleifar við flakið. 32 fórust er skipið strandaði við eyjuna Giglio fyrir tæpum tveimur árum síðan.
„Við leit í sjónum við miðju skipsflaksins fundu kafarar frá strandgæslunni og lögreglunni líkamsleifar sem enn á eftir að bera kennsl á,“ segir í yfirlýsingu.
Þrjátíu lík fundust eftir strand skipsins en tveggja hefur verið saknað, Ítalans Mariu Grazia Trecarichi og Indverjans Russel Rebello.
Leitin að líkum þeirra hófst er skipið var sett á réttan kjöl í síðustu viku.
Enn er réttað í máli skipstjórans sem talinn er hafa af gáleysi siglt skipinu í strand.