Harry prins féll fyrir Íslandi

Harry Bretaprins.
Harry Bretaprins. AFP

Harry Bretaprins er sagður ætla að biðja kærustu sinnar undir norðurljósunum á Íslandi. Þetta kemur fram á vef Huffington Post.

Harry er 29 ára og hefur verið átt í ástarsambandi við Cressidu Bonas í rúmt ár. Í frétt Huffington Post segir að margir séu farnir að velta fyrir sér hvort prinsinn ætli fljótlega að bera upp bónorðið og með hvaða hætti það verði gert.

„Harry hefur verið við þjálfun á Íslandi fyrir göngu sína á suðurpólinn í nóvember og hann hefur fallið fyrir landinu,“ er haft eftir heimildarmanni um málið í breska blaðinu Heat. Heimildarmaðurinn segir að Harry vilji fara með kærustuna til Íslands og bera upp bónorðið undir norðurljósunum. „Hann veit að hún mun elska það,“ segir heimildarmaðurinn. 

Frétt Huffington Post.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert