Þrír lögreglumenn skotnir til bana

Mótmæli í Egyptalandi.
Mótmæli í Egyptalandi. AFP

Þrír lögreglumenn voru skotnir til bana í Egyptalandi í dag. Árásum á lögreglu og hermenn hefur fjölgað upp á síðkastið.

Lögreglumennirnir stóðu vörð við Háskólann í Mansura er á þá var ráðist. Árásarmennirnir flúðu svo af vettvangi.

Allt frá því forsetanum fyrrverandi, Mohamed Morsi, var komið frá völdum hafa árásir verið gerðar nær daglega og mörg hundruð manns látið lífið. Mótmælafundir eru tíðir og hefur lögregla og herinn beitt valdi gegn stuðningsmönnum Morsis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert