Borgarstjóri Toronto-borgar í Kanada, Rob Ford, viðurkenndi í dag að hafa reykt krakk eftir að hafa staðfastlega neitað því að hafa gert það undanfarna mánuði síðan myndband sem sýndi hann við þá iðju var gert opinbert.
Fram kemur í frétt AFP að Ford hafi viðurkennt reykingarnar fyrir utan skrifstofu sína að viðstöddum fjölmiðlum en krafist hefur verið afsagnar hans vegna málsins. „Já, ég hef reykt krakk,“ sagði hann við fjölmiðlafólkið. Hann þvertók hins vegar fyrir að vera háður reykingunum þó að hann hugsanlega prófað það á fylliríi. Hann sagðist telja að reykingarnar hefðu átt sér stað fyrir um ári en sagðist ekki vita það nákvæmlega. Hann sagðist ekki ætla að segja af sér embætti vegna málsins.
Níutíu sekúndna myndband af Ford reykjandi krakk var gert opinbert í maí síðastliðnum og hefur reglulega verið fjallað um málið í fjölmiðlum síðan.