Morsi ætlar í mál

Morsi á enn marga stuðningsmenn í Egyptalandi.
Morsi á enn marga stuðningsmenn í Egyptalandi. AFP

Mohamed Morsi, fyrrverandi forseti Egyptalands, ætlar í mál við yfirvöld í landinu fyrir að steypa honum af stóli í júlí síðastliðnum. Þetta tilkynnti lögfræðingur forsetans fyrrverandi í dag.

Morsi situr nú í fangelsi og bíður réttarhalda vegna þátttöku sinnar í dauða mótmælenda fyrir utan forsetahöll hans árið 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert