Einn meðlima rússnesku pönksveitarinnar Pussy Riot sagðist á blaðamannafundi í Moskvu í dag enn vilja forseta landsins, Vladimír Pútín, frá völdum. Sagðist hún vilja fjármálajöfurinn Mikhail Khodorkovsky, sem einnig var náðaður á dögunum, á forsetastól.
„Hvað Vladimír Pútín varðar, hefur viðhorf okkar til hans ekkert breyst,“ sagði Nadezhda Tolokonnikova á blaðamannafundinum.
„Við viljum enn gera það sem við vorum fangelsaðar fyrir, við viljum enn koma honum frá völdum,“ sagði hún á fundinum sem hún sat ásamt Mariu Alyokhinu, en þær fengu báðar sakaruppgjöf fyrir jólin. Þær fengu tveggja ára fangelsisdóm fyrir að flytja pönkbæn í kirkju.