Tveir meðlimir rússnesku hljómsveitarinnar Pussy Riot segjast ekki ætla að hætta baráttu sinni fyrir mannréttindum í Rússlandi. Þær eru nú í sinni fyrstu heimsókn utan landssteinanna eftir að hafa verið látnar lausar úr fangelsi í desember.
Nadezhda Tolokonnikova og Maria Alyokhina eru í dag viðstaddar verðlaunaafhendingu í Singapúr. Þar sögðust þær ætla að halda áfram að nota list sína til að koma málsstað sínum á framfæri.
Myndband af því er Pussy Riot flutti pönkbæn í kirkju í Moskvu hefur verið tilnefnt til verðlauna á hátíðinni í Singapúr.
Í kjölfar flutningsins voru þrír meðlimir sveitarinnar handteknir og síðar dæmdir til fangelsisvistar.
„Í augnablikinu einbeitum við okkur að mannréttindum sem felur í sér mikla lögfræðivinnu,“ sagði Tolokonnikova. Hún sagði að Pussy Riot myndi halda áfram að nota myndbönd og önnur listræn form til að koma málstað sínum á framfæri.
„Við munum alveg pottþétt halda afskiptum okkar af póltík áfram og í augnablikinu einbeitum við okkur að verkefni sem miðar að því að hjálpa föngum því í Rússlandi snýst allt slíkt um pólitík.“
Þær segjast myndu nota verðlaunaféð til að halda baráttu sinni áfram. Verðlaunin verða afhent á morgun.