Harold Ramis látinn 69 ára að aldri

Harold Ramis.
Harold Ramis. Wikipedia/Justin Hoch

Bandaríski leikarinn, leikstjórinn og handritshöfundurinn Harold Ramis lést í dag 69 ára að aldri. Ferill hans hófst fyrir alvöru þegar hann lék í kvikmyndinni Ghostbusters sem var frumsýnd árið 1984. Þá leikstýrði hann kvikmyndinni Groundhog Day með Bill Murray og Andie MacDowell.

Ramis bjó lengst af í Chicago í Bandaríkjunum. Hann lést á heimili sínu umkringdur vinum og ættingjum samkvæmt frétt AFP en banamein hans var sjaldgæfur blóðsjúkdómur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert