Pari sem er grunað um að hafa myrt hina átta ára gömlu Yöru í Karlskrona í Svíþjóð ber ekki saman um hvað gerðist kvöldið sem hún lést.
Þetta kemur fram á vef Expressen. Þar er haft eftir verjanda mannsins að hún viti einungis hvað hennar skjólstæðingur hafi sagt við yfirheyrslur en ekki hvað kom fram í máli konunnar. Verjandi konunnar hefur ekki viljað tjá sig um málið þar sem skjólstæðingur hans hafi óskað eftir því.
Yara verður krufin í dag og er vonast til þess að réttarrannsókn leiði í ljós hvað dró hana til dauða.
Móðurbróðir Yöru og eiginkona hans eru grunuð um að hafa valdið dauða stúlkunnar og hafa þau setið í gæsluvarðhaldi frá 1. maí sl. Gæsluvarðhald yfir fólkinu hefur verið framlengt til 16. maí nk.
Pernilla Åström, saksóknari í málinu, segir að Yara hafi líklega verið látin þegar sjúkraflutningamenn komu að heimili hennar í Karlskrona í síðastliðið miðvikudagskvöld. Áður hefur komið fram að hún hafi verið úrskurðuð látin á sjúkrahúsi.
Åström staðfesti að margvíslegir áverkar hefðu verið á líki stúlkunnar. Hún vildi aftur á móti ekki staðfesta að eldri áverkar hefðu fundist á henni.
Líkt og mbl.is hefur greint frá virðist ekki hafa verið hugsað nógu vel um stúlkuna litlu. Hún fannst stórslösuð í íbúð í Karlskrona og var úrskurðurð látin á sjúkrahúsi skömmu síðar.
Stúlkan kom ein til Svíþjóðar í fyrra sem flóttamaður frá Palestínu. Til stóð að foreldrar stúlkunnar myndu einnig flytja til Svíþjóðar til að dvelja hjá dóttur sinni og hafði beiðni þess efnis verið send sænskum yfirvöldum.
Nágrannar stúlkunnar höfðu tekið eftir því að hún var stundum illa klædd, þrátt fyrir að kalt væri úti. Hún var stundum ein með tveggja ára dreng og ungbarn, þrátt fyrir að vera aðeins sjö og síðan átta ára. Þá haltraði hún og virtist vera með áverka á fótunum.