Að minnsta kosti þrettán voru brenndir til bana í Mið-Afríkulýðveldinu um helgina. Fólkinu var hópað saman inn í hús af vopnuðum mönnum sem svo kveiktu í húsinu.
Árásin er að sögn lögreglu talin tengjast hópi sem hefur tengsl við skæruliðahreyfingu múslíma, Seleka.