Ísraelsþing hefur samþykkt vopnahléstilboð sem Egyptar hafa lagt fram en Hamas setur skilyrði fyrir vopnahléi. Ekkert formlegt svar hefur borist frá Hamas varðandi vopnahléstilboðið.
Samþykkt var fyrir skömmu tillaga stjórnvalda í Egyptalandi um að stríðandi fylkingar á Gaza semdu um að vopnahlé tæki gildi strax. Árásir hafa verið á bága bóga í viku og hafa 192 Palestínumenn látist í árásum Ísraelshers á Gaza. Ekkert mannfall hefur orðið vegna árása hernaðararms Hamas frá Gaza yfir til Ísraels en fjórir hafa slasast alvarlega.
Tilboð Egypta var lagt fram í kjölfar viðvörunar frá bandarískum stjórnvöldum til Ísraela vegna fyrirhugaðs landhernaðar. Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, fagnar tillögu Egypta og segir dauða almennra borgara á Gaza harmleik. Hann ítrekaði á sama tíma að Ísraelar hefðu rétt á að verjast eldflaugaárásum frá Gaza.
Talsmaður Hamas, Fawzi Barhum, sagði í viðtali við AFP í gærkvöldi að ekki yrði samið um vopnahlé nema samningum yrði náð fyrst. „Á stríðstímum er vopnahléi ekki komið á og síðan samið,“ segir hann.
Samkvæmt BBC tala liðsmenn Hamas um að vopnahlé nú væri uppgjöf en tilboð Egypta kom fram að loknum miklum fundahöldum um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs í Kaíró í gær.
Um 80% þeirra sem hafa beðið bana í loftárásum Ísraelshers á Gaza-svæðið voru óbreyttir borgarar og rúm 20% börn, að sögn OCHA, samræmingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum. Frá því að árásirnar hófust hafa þær að meðaltali kostað sex börn lífið á dag.
Um 940 íbúðir á Gaza-svæðinu höfðu verið lagðar í rúst í árásunum og áætlað er að um 5.600 Palestínumenn hafi misst heimili sín, að því er fram kemur í skýrslunni. Auk þeirra hafa um 16.000 manns flúið heimili sín og leitað athvarfs í tuttugu skólum á norðanverðu Gaza-svæðinu.