Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna hafa fundið seinni flugrita farþegavélar Air Algerie, sem hrapaði í Malí á fimmtudag. Fyrsti flugritinn fannst í gær, að sögn talsmanns Sameinuðu þjóðanna.
Enginn komst lífs af þegar vélin hrapaði. Um borð voru 116 manns, 110 farþegar og sex manna áhöfn. Þeir sem fórust voru af 54 þjóðernum en flestir þeirra voru Frakkar.
Vélin hrapaði skammt frá landamærunum að Búrkína Faso. Þaðan var hún á leið til Alsír.
Samband rofnaði við vélina um fimmtíu mínútum eftir flugtak. Flugmenn höfðu átt í samskiptum við flugumferðarstjórn vegna slæms veðurs yfir Sahara-eyðimörkinni. Vélin breytti um stefnu vegna veðursins og er talið líklegt að hún hafi jafnframt hrapað vegna þess.