Fánar voru dregnir í hálfa stöng í Frakklandi í dag en Frakkar minnast þeirra 118 sem létu lífið er alsírska farþegavélagin hrapaði í Malí síðastliðinn fimmtudag.
Vélin var á leið yfir Sahara-eyðimörkina frá Búrkína Fasó til Alsírs. Sérfræðingar bíða nú flugritanna sem sendir voru til borgarinnar Gao í Malí þar sem franski herinn hefur bækistöðvar sínar.
Sérfræðingar í flugslysum vinna nú við brak vélarinnar en talið er að það muni taka nokkra daga að fara í gegnum það. Ekki er vitað af hverju vélin hrapaði. Frönsk stjórnvöld telja að allt bendi til þess að vélin hafi farist í slæmu veðri, en aðrir möguleikar hafa hins vegar ekki verið útilokaðir.
Íbúar Búrkína Fasó komu víða saman í kirkjum landsins í gær en þar voru haldnar bænastundir.