Lögregla í Missouri í Bandaríkjunum beitti táragasi og reyksprengjum í gærkvöldi þegar hópur fólks mótmælti vegna dauða Michaels Brown, unglingspilts sem lögreglumaður skaut til bana í úthverfi borgarinnar.
Tveir blaðamenn, sem unnu að umfjöllun um mótmælin, voru handteknir á staðnum. Mótmæli hafa staðið yfir í borginni frá því á laugardag, þegar Brown var skotinn.
Blaðamennirnir tveir starfa hjá Washington Post og Huffington Post. Þeir voru handteknir á skyndibitastaðnum McDonalds eftir að lögregla kom á þangað og skipaði fólki að yfirgefa staðinn.
Þetta sögðu blaðamennirnir í twitter-færslum en annar þeirra sagði að þeir hefður ekki fengið skýringar á handtökunni. Þeir hefðu aðeins fengið þær upplýsingar að þeir væru þarna í leyfisleysi og höfðu þeir ekki verið ákærðir þegar þeim var sleppt.
Fyrr um kvöldið skaut lögregla nokkrum skotum að 19 ára manni sem beindi skammbyssu að þeim.