Í dánarvottorði leikarans Robin Williams kemur fram að ösku hans var dreift í San Francisco flóanum eftir útför hans þann 12. ágúst, daginn eftir andlát hans. Í vottorðinu kemur einnig fram að rannsókn á andláti hans standi enn yfir.
Borgin San Francisco var heimili leikarans í meira en 50 ár.
Ekki er enn vitað hvað varð til þess að Williams ákvað að taka eigið líf. Náinn fjölskylduvinur hefur haldið því fram í samtali við TMZ að ákvörðunin hafi verið tekin snögglega, þrátt fyrir að Williams hafi liðið illa í lengri tíma.
Leikarinn Rob Schneider, sem var náinn vinur Williams, telur hins vegar ástæðu sjálfsvígsins vera parkinsons-lyf sem Williams hafði nýlega þurft að taka. Leikarinn greindist með sjúkdóminn skömmu áður en hann lést. Á twittersíðu sinni skrifar Schneider: „Nú þegar við getum rætt málið: Williams var farinn að taka parkinsons-lyf áður en hann lést. Ein aukaverkun lyfsins er sjálfsvíg.“
Sjá frétt Daily Mail