Fannst fullkomlega eðlilegt að káfa á þeim innanklæða

Dave Lee Travis
Dave Lee Travis AFP

Fyrrverandi útvarpsmaðurinn Dave Lee Travis kom fyrir dómara í dag en hann er ákærður fyrir kynferðisofbeldi gagnvart konum frá árinu 1990 til 2008.

Rannsókn hófst á Travis, sem er 69 ára, eftir að upp komst um brot annars fjölmiðlamanns Jimmy Savile. Travis stýrði meðal annars þættinum Top of the Pops. Fórnarlömb hans segja að Travis hafi látið eins og hann væri í fullkomnum rétti þegar hann strauk brjóst þeirra eða káfaði á þeim innan klæða. 

Travis var handtekinn í nóvember 2012 grunaður um kynferðislegt ofbeldi. Réttarhöld í máli hans fóru fram fyrr á árinu en þar var hann sakaður um kynferðislegt ofbeldi á tímabilinu 1976-2008. Hann var sýknaður af ákærunni, sem var í tólf liðum.

Réttarhöldin nú eru hins vegar vegna ákæru í tveimur liðum, í fyrsta lagi fyrir ósæmilega hegðun og í öðru lagi kynferðislegt ofbeldi. Travis hefur neitað sök. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert