Keníabúar minnast þess í dag að eitt ár er liðið frá því að ráðist var á Westgate-verslunarmiðstöðina í Naíróbí í Kenía. Að minnsta kosti 67 manns féllu í árásunum. Skjöldur til minningar um hina látnu verður afhjúpaður og ásamt því að kveikt verður á kertum.
Umsátursástand ríkti við verslunarmiðstöðina í fjóra daga og tókst hernum smá saman að bjarga fólki út úr húsnæðinu. Árásarmennirnir gengu um verslunarmiðstöðina og skutu hiklaust á fólk sem varð á vegi þeirra.
Sómalíski hryðjuverkahópurinn Shebab lýsti yfir ábyrgð á árásinni, en hann sagði árásina hafa verið gerða vegna afskipta keníska hersins í Sómalíu.
Rauði krossinn segir að enn sé um 20 manna saknað eftir árásina.