Travis fékk skilorðsbundinn dóm

Dave Lee Travis á leið í dómshúsið í morgun
Dave Lee Travis á leið í dómshúsið í morgun AFP

Fyrrverndi sjónvarps- og útvarpsmaðurinn Dave Lee Travis var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislegt ofbeldi gagnvart konu sem starfaði með honum árið 1995.

Í síðustu viku var Travis, sem er 69 ára gamall, fundinn sekur um að hafa ráðist á konu sem starfaði við þáttinn Mrs Merton Show á BBC. Áður hafði Travis verið sýknaður af tveimur öðrum ákærum um kynferðislegt ofbeldi. Fyrr á árinu var hann einnig sýknaður af ákæru um tólf slík brot. 

Travis, sem stýrði þættinum Top Of The Popsá sínum tíma, króaði konuna af fyrir utan stúdíó hjá BBC þar sem hún var að reykja. Eftir að hafa gagnrýnt hafa fyrir að reykja kleip hann í brjóst hennar.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka