Bretinn Samantha Lewthwaite, eða Hvíta ekkjan eins og hún er kölluð, sem grunuð er um að hafa tekið þátt í að skipuleggja hryðjuverkin í Kenía, er nú talin látin.
Lewthwaite er talin hafa látist hægum og kvalarfullum dauðdaga þegar hún var skotin af uppreisnarmönnum stutt frá bænum Debaltsevo í Úkraínu fyrir tveimur vikum síðan. Þessu greindi rússneska fréttastofan Regnum frá í gær.
Yfirvöld í Bretlandi vinna nú að því að staðfesta dauða Lewthwaite.
Margir hafa þó bent á það að engar staðfestar heimildir liggi fyrir um það að Lewthwaite hafi yfirgefið Afríku, og því sé ólíklegt að hún hafi verið í Úkraínu á þessum tíma. Þá hefur verið sett spurningarmerki við það að uppreisnarmenn hafi haldið upplýsingunum um dauða hennar leyndum í tvær vikur.
Lewthwaite er fædd 5. desember 1983 og er frá enska smábænum Banbridge í County Down. Sagt er að hún hafi snúist til íslamstrúar á táningsaldri þegar foreldrar hann gengu í gegnum skilnað.
Lewthwaite giftist Germaine Lindsay árið 2005, en Lindsay lést eftir að hafa sprengt sig upp í árásum á almenna borgara í lestarferð á milli King's Cross St. Pancras and Russell Square í Lundúnum 7. júlí sama ár. Í sjálfsvígssprengjuárásinni létust 26 saklausir borgarar. Fleiri árásir voru gerðar í lestarvögnum þann sama dag og dóu því á fjórða tug manna.
Samantha neitaði aðild eiginmanns síns að sprengingunni þar til lögregla hafði óyggjandi sannanir. Þá sagðist hún hafa viðbjóð á ódæðisverkinu og að öfgamenn hefðu eitrað huga eiginmanns síns.
Eftir þetta hefur Lewthwaite verið bendluð við fjölda hryðjuverkaárása, og samkvæmt kenísku leyniþjónustunni var hún lykilmanneskja í undirbúningi Shabab-hryðjuverkasamtakanna í árásinni á verslunarmiðstöðina í Naíróbí. Samtökin höfðu skipulagt fleiri árásir víða um Kenía.