Lögreglumaður skaut þeldökkan mann til bana í borginni Phoenix í Arizona-ríki í Bandaríkjunum á miðvikudaginn. Fram kemur í frétt AFP að lögreglumaðurinn, sem sjálfur er hvítur, hafi talið að maðurinn, Rumain Brisbon, væri að seilast eftir byssu í buxnavasa sínum. Í ljós kom hins vegar að maðurinn var einungis með pillur í vasanum.
Lögreglumaðurinn hafði mætt á staðinn til þess að rannsaka fíkniefnamál fyrir utan matvöruverslun. Til átaka kom á milli mannanna og í þeim miðjum fór Brisbon með höndina ofan í vasann samkvæmt tilkynningu yfirvalda sem send var út í gær. Lögreglumaðurinn greip í hönd Brisbons og skipaði honum að halda hendinni í vasanum. Honum fannst hann finna fyrir skefti á skammbyssu í vasanum.
Fram kemur að lögreglumanninum hafi ekki tekist að hafa hemil á Brisbon og þar sem hann hafi óttast að hann væri vopnaður hafi hann skotið hann tvisvar í brjóstið. Brisbon lést af sárum sínum á staðnum. Lögreglumaðurinn varð fyrir óverulegum meiðslum. Lögmaður fjölskyldu Brisbons segir fjölda vitna hafa aðra sögu að segja en lögreglumaðurinn. Málið verði sótt af fullri hörku innan ramma laganna.