Ruslabíll ók inn í hóp fólks í Glasgow í Skotlandi með þeim afleiðingum að sex manns létust. Slysið varð við Millenium-hótelið í miðborginni.
Margir slösuðust, samkvæmt frétt Sky-fréttastofunnar. Í fréttinni kemur fram að fólkið hafi verið að bíða eftir að komast yfir gangbraut. Fram kemur að fólk hafi kastast í um 15 metra upp í loftið er bíllinn ók á mannfjöldann.