Að minnsta kosti annar af flugritum farþegaþotu AirAsia er fundinn. Í morgun var greint frá því að sterk merki bærust frá honum um einn kílómetra austur af staðnum þar sem stél vélarinnar fannst.
Köfurum tókst þó ekki að ná í flugritann þar sem hann var fastur undir braki úr flugvélinni.
Vélin fórst hinn 28. desember síðastliðinn. Talið er að vélin hafi farist vegna veðurs. Gögn úr flugritanum ættu að geta gefið gagnlegar upplýsingar vegna rannsóknar á slysinu.