Gary Glitter fundinn sekur

Gary Glitter
Gary Glitter AFP

Gary Glitter hefur verið fundinn sekur kynferðisbrot gegn þremur ungum stúlkum. Ein þeirra var yngri en tíu ára þegar hann braut gegn henni og voru hinar tvær tólf og þrettán ára.

Glitter skreið upp í rúm til yngstu stúlkunnar og reyndi að nauðga henni. Þetta var árið 1975. Hann braut gegn eldri stúlkunum tveimur eftir að hafa boðið þeim inn í búningsherbergi sitt .

Glitter hristi höfuðið og setti stút á varirnar þegar dómurinn var kveðinn upp í dag. Sendi hann fjölmiðlafólki fingurkossa þegar hann var leiddur burt úr dómssalnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert