Yfirheyra 84 ára karlmann

Talið er að málið tengist hugsanlega kynferðisbrotum fjölmiðlamannsins Jimmy Savile.
Talið er að málið tengist hugsanlega kynferðisbrotum fjölmiðlamannsins Jimmy Savile. Wikipedia

Lögregla í London, Scotland Yard, hefur staðfest að 84 ára karlmaður hafi verið yfirheyrður í tengslum við meint kynferðisbrot. Rætt var við hann á þriðjudag og miðvikudag í þessari viku á lögreglustöð í Stafford.

Talið er að málið tengist hugsanlega kynferðisbrotum fjölmiðlamannsins Jimmy Savile.

Sky-sjónvarpsstöðin greinir frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka