Lögregla í Kaupmannahöfn hefur lokað af svæðinu í kringum menningarhúsið Krudttønden eftir að grunsamlegt bréf barst þangað. Lögregla hefur kallað til sprengjusérfræðinga til að rannsaka bréfið.
Í frétt danska ríkisútvarpsins kemur fram að það hafi verið starfsmaður hússins sem lét vita af bréfinu. Í bréfinu er meðal annars fjallað um atburði laugardagsins en lögregla hefur ekki viljað gefa frekari upplýsingar.
Árás var gerð á menningarhúsið á laugardag. Húsið stendur við Austurbrú í Kaupmannahöfn. Í húsinu fór fram ráðstefna um list, tjáningarfrelsi og guðlast. Omar Abdel Hamid El-Hussein, 22 ára Dani, er talinn bera ábyrgð á ársásinni, sem og árás á við bænahús gyðinga seinna um kvöldið.
Ammunitionseksperter tilkaldt til Krudttønden. Det er normal procedure #politidk
— Københavns Politi (@KobenhavnPoliti) February 17, 2015
Krudttønden: Undersøgelse afsluttet. Intet om sprængstoffer. Afspærring ophævet #politidk
— Københavns Politi (@KobenhavnPoliti) February 17, 2015
Uppfært kl. 8.59
Á Facebook-síðu lögreglunnar í Kaupmannahöfn hefur fram að búið sé að aflétta lokuninni við Krudttønden og ekki hafi verið um sprengju að ræða. Rannsókn á sendingunni sem barst er lokið.